Rafmagnsstaur kveikti í sinu

Mikill sinubruni varð í dag þegar rafmagnsstaur brotnaði við Seljaland austan Markarfljóts.

Talið er að um tíu til fimmtán hektara svæði hafi orðið eldinum að bráð. Slökkvilið Brunavarna Rangárvallasýslu slökkti eldinn á um einni klukkustund.

Óli Kristinn Ottósson, bóndi á Eystra-Seljalandi, segir á mbl.is að rafmagnsstaurinn hafi brotnað undan vindálagi. Hann telur að eldurinn hafi kviknað skömmu eftir tvö í dag og tjónið virðist ekki mikið, en engin hús voru í hættu.

Fyrri greinGuðmundur markahæstur í stórsigri
Næsta greinLaugdælir kjöldregnir í Kópavogi