Lögreglan á Suðurlandi er með til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti í Biskupstungum. Málið kom upp í lok apríl og er sá er misgjört var við erlendur ríkisborgari sem hefur verið hér á landi í langan tíma. Allir grunaðir í málinu eru Íslendingar.
Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins og var það framlengt síðastliðinn föstudag til 24. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og hefur notið aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embættis Ríkislögreglustjóra og embættis Héraðssaksóknara.
Rannsókn málsins er enn í fullum gangi og er lögreglu því ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið.