Raufarhólshellir hefur verið tengdur dreifikerfi Rarik en rafmagn fyrir lýsingu í hellinum og í þjónustuhúsi við hellinn hefur hingað til verið framleitt með díselvél.
Raufarhólshellir er hraunhellir í Leitahrauni í landi Vindheima í Ölfusi. Inngangur í hellinn er um op sem myndaðist þegar hluti af hraunþakinu féll niður.
Rarik barst formleg umsókn um rafmagn í hellinn og þjónustuhúsið um miðjan maímánuð á þessu ári og í framhaldinu hófst hönnun og undirbúningur rafvæðingar.
Í ágúst var plægður niður 3.800 m langur háspennustrengur frá spennistöð við Grímslækjarheiði að þjónustuhúsi við Raufarhólshelli þar sem sett var upp 100 kVA spennistöð. Svæðið er frekar erfitt enda um hraun og klöpp að fara og þurfti því að notast við fræsarahjól mest alla leiðina.
Verkið gekk vel miðað við aðstæður og var heimtaugin spennusett þann 11. september.