„Þetta er fjarstæða,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, um ræðu Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata, á Alþingi á föstudaginn í síðustu viku.
Helgi Hrafn sagði í ræðu sinni að FSu hefði skorið niður um helming námsráðgjafastöðu sem löggjafinn ætlaði sérstaklega fyrir fanga, og notað fjármagnið í annan rekstur skólans.
Í Fréttablaðinu í dag segir Olga Lísa rangt að FSu hafi notað fé löggjafans til annars en fangelsismála og segist reið yfir því að vera þjófkennd. Hún segir Helga Hrafn ekki hafa leitað upplýsinga um málefnið. Hefði hann gert það hefði hann fengið upplýst að málefni fanga eru á sérlið og ekki hægt að ráðstafa því í annan rekstur skólans.
„Hann hafði aldrei samband við okkur og mér finnst það ömurleg vinnubrögð. Það var einfaldlega halli á rekstrinum á þessum lið. Þetta er algjör sérliður í fjármálum skólans. Það fé sem við fáum er aðeins nýtt í námsráðgjöf og kennslustjórn og ekki í nokkuð annað eins og Helgi Hrafn gefur í skyn. Ég er búin að ræða við Helga Hrafn og hann segist ekki hafa sagt neitt rangt,“ segir Olga Lísa.
Helgi Hrafn segist í samtali við Fréttablaðið ekki hafa ætlað sér að þjófkenna Olgu Lísu. „Mér þykir miður að ræðan skiljist þannig. Hins vegar hef ég ekki fengið að sjá nein gögn sem eru í andstöðu við það sem ég sagði. Ræðan er efnislega rétt. Ég er ekki í löggu- og bófaleik, Ég vil bara laga þetta. Helst í góðu samstarfi við skólameistara FSu.“