Reiðarslag fyrir Þorlákshöfn

HB Grandi hefur fest kaup á 1.600 þorskígildistonna kvóta af Hafnarnesi VER í Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB-Granda. Reiðarslag fyrir Þorlákshöfn segir bæjarstjórinn.

Í tilkynningu HB Granda segir að ríflega helmingur aflaheimildanna sé þorski og félagið sé með þessum kaupum að tryggja afla til vinnslu á Vopnafirði.

RÚV greinir frá þessu.

Með þessu er ljóst að stór skarð er hoggið í útgerð í Þorlákshöfn. Þegar fréttastofa RÚV hafði samband við Gunnstein R. Ómarsson, bæjarstjóra Ölfuss, var honum brugðið. Hann er í sumarfríi og hafði ekki fengið neinar fregnir af sölunni. Eigendur Hafnarnes VER höfðu ekki greint bæjarstjórn frá stöðunni. Gunnsteinn sagði að ef rétt reynist þá sé þetta mikið reiðarslag fyrir bæinn. Um sé að ræða stóran vinnustað og með þessu væri nær allur kvótinn horfinn úr bæjarfélaginu.

Þá hafði forseti bæjarstjórnar, Sveinn Steinarsson, ekki heldur fengið fregnir um söluna en hann er í útlöndum.

Í tilkynningu frá HB Granda segir að með kaupunum sé verið að greiða úr skuldavanda Hafnarnes VER. Sala aflaheimildanna hefði verið nauðsynlegur þáttur til að unnt væri að halda áfram rekstri með breyttum áherslum.

Ólafur Hannesson, framkvæmdastjóri Hafnarnes Ver í Þorlákshöfn, sagði í samtali við RÚV að ekkert annað hafi verið í stöðunni fyrir fyrirtækið en að selja HB Granda 1600 tonna kvóta. Ákvörðunin, sem setur sextíu störf í hættu, hafi ekki verið auðveld.

Fyrri grein„Lyftum hökunni upp og börðumst áfram“
Næsta grein„Viljum skapa gott umhverfi fyrir unga leikmenn“