Björgunarsveitir úr Árborg og Hveragerði voru kallaðar út á þriðja tímanum í dag vegna reiðmanns sem fallið hafði af hestbaki skammt frá Marardal, norðan við Hengilinn.
Björgunarfólk á breyttum jeppum og sexhjólum komust að hinum slasaða og fluttu hann til móts við sjúkrabíl.
Knapinn var fluttur á slysadeild en upplýsingar um meiðsli hans liggja ekki fyrir.