Tvö þjófnaðarmál voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku og í báðum tilvikum var reiðufé stolið.
Í öðru tilvikinu var reiðufé stolið úr ökutæki ferðamanna á fjölförnum ferðamannastað en slíkar tilkynningar hafa verið nokkrar í vetur.
Annað þjófnaðarmál kom upp þar sem talið var að farið hafi verið inn á herbergi á gististað og þaðan stolið reiðufé úr farangri.