Rennsli Ölfusár við Selfoss er enn að aukast og nær hámarki síðdegis eða í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Vatnsborð er farið að lækka við Iðu og hefur líklega náð hámarki við Gíslastaði undir Hestfjalli snemma í morgun.
Fram kemur á vef Veðurstofunnar, að vatnavextirnir í Hvítá, Ölfusá og Þjórsá um helgina séu þeir mestu frá því í desember 2007.