Ríflegur afsláttur af gatnagerðargjöldum atvinnulóða á Flúðum

Flúðir. Ljósmynd/Hera Hrönn Hilmarsdóttir

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hefur samþykkt að veittur verði 50 prósent afsláttur af gatnagerðargjöldum atvinnulóða við götuna Iðjuslóð á Flúðum.

Munu gatnagerðargjöld við þessa ákvörðun verða á bilinu þrjár til sex milljónir króna per lóð en gjaldið fer eftir heimiluðu byggingarmagni á hverri lóð fyrir sig. Gildir afslátturinn af öllum lóðum við götuna sem úthlutað er til 1. september á næsta ári.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að farið hafi verið í gatnagerð við Iðjuslóð fyrir allmörgum árum en fyrirhugað er að ráðast í yfirborðsfrágang götunnar á næsta ári. Við Iðjuslóð hafa þegar risið tvö hús.

Nýverið var þremur lóðum við götuna úthlutað vegna byggingar björgunarmiðstöðvar og einni annarri lóð var nýlega úthlutað. Enn eru því sjö lóðir við Iðjuslóð sem er óúthlutað. Lóðirnar eru tæpir 1.600 til 2.400 fermetrar að stærð og er nýtingarhlutfallið á bilinu 0,4 til 0,6.

„Með því að veita ríflegan afslátt af gatnagerðargjöldum er verið að veita húsbyggjendum og fyrirtækjaeigendum umtalsvert betri kjör á byggingarlóðum en áður hefur tíðkast í þeirri von að slíkur afsláttur glæði áhuga athafnafólks á Flúðum sem vænlegum kosti fyrir uppbyggingu fyrirtækja og atvinnulífs,“ segir í greinargerð sveitarstjórnar með tillögunni.

Fyrri greinSkítamórall fagnar 35 ára afmæli
Næsta greinNotalegir jólatónleikar með léttu gríni