Íslenska ríkið hefur komist að samkomulagi við Landeigendafélag Geysis um kaup á öllum eignarhlutum landeigendafélagsins innan girðingar á Geysissvæðinu.
Þar með er bundinn endi á áratugalangan ágreining um verndun og uppbyggingu svæðisins.
Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að svæðið innan girðingar á Geysi sé um það bil 19,9 hektarar að stærð. Innan þess svæðis á ríkið sem séreign um það bil 2,3 hektara lands fyrir miðju svæðisins en þar eru hverirnir Geysir, Strokkur, Blesi og Óþverrishola. Það sem eftir stendur eða um 17,6 ha. er í sameign ríkisins og Landeigendafélagsins.
Kaupverð eignarhlutans verður lagt í mat þriggja dómkvaddra matsmanna en við undirritun samningsins tók ríkið formlega við umráðum alls lands sameigenda innan girðingar við Geysi.
„Samningurinn markar tímamót því hann auðveldar heildstæða uppbyggingu á svæðinu í samræmi við niðurstöðu í hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið sem haldin var fyrir nokkrum misserum. “
RÚV greinir frá þessu