Helgin var með rólegra móti hjá lögreglunni á Suðurlandi. Eins og oft áður er hraðakstur fyrirferðarmikill í dagbókinni en átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur.
Sá sem hraðast ók var á 142 km/klst á Biskupstungnabraut.
Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt, án slysa á fólki. Eitt þjófnaðarmál var tilkynnt og er það til rannsóknar.