Verðlauna- og styrktarsjóður Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi veitti í gær tveimur sunnlenskum fyrirtækjum og einni skólastofnun viðurkenningu og fjárstyrk.
Voru viðurkenningarnar afhentar á lokahófi umdæmisþings Rótarý á Íslandi en þingið var haldið á Selfossi um helgina.
Var 1,1 milljón krónum ráðstafað til þessara viðurkenninga og hlaut Fjölbrautarskóli Suðurlands hæsta styrkinn, 500 þúsund kr., en skólinn fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði mennta- og samfélagsverkefna – fyrir menntun fanga á Litla Hrauni og Sogni – sem skilar þeim sem betri borgurum til samfélagsins. Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari tók við viðurkenningunni .
Sæbýli ehf. á Eyrarbakka fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði vísinda og atvinnumála. Sæbýli er að hefja framleiðslu á sæeyrum og sæbjúgum til útflutnings og nýtir til þess íslenskt hugvit, heitt vatn og hreinan sjó. Dr. Ragnar Jóhannsson veitti verðlaununum viðtöku f.h. Sæbýlis. Viðurkenningunni fylgdi 300 þús. kr. fjárstyrkur.
Fengur ehf. í Hveragerði fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði atvinnumála en auk annarra verkefna endurvinnur Fengur spón fyrir íslenskan landbúnað og nýtir til þess íslenskt hugvit, timburúrgang og vistvæna orku. Viðurkenningunni fylgdi 300 þús. kr. fjárstyrkur. Sigurður Halldórsson framkvæmdastjóri veitti viðurkenningunni viðtöku.