Rótarýklúbbur Rangæinga færði íbúum Rangárvallasýslu á dögunum forláta bekk til heiðurs Ólafi Ólafssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra en hann varð 100 ára þann 5. maí síðastliðinn.
Ólafur var einn af stofnfélögum klúbbsins og aðalhvatamaður að stofnun hans árið 1966. Ólafur og Grétar Björnsson eru einu núlifendur stofnfélaga klúbbsins.
Bekkurinn stendur við Litla salinn í Hvoli en þar halda Rótarýfélagar fundi sína á fimmtudögum kl. 18:00.