Rústir Fögru-Flatar hafa þurrkast út

Í kjölfar hlaupsins í Skaftá fór Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands, í vettvangsferð um Skaftártungur til að kanna aðstæður með tilliti til menningarminja eftir nýafstaðið Skaftárhlaup.

Skammt sunnan við brúna yfir Eldvatnið hjá Eystri-Ásum er grjóthlaðin rétt. Áin rennur þar í gljúfri en Uggi segir í samtali við Bændablaðið að hlaupið hafi rifið úr bakkanum með þeim afleiðingum að ekki eru nema tveir metrar frá árfarveginum að réttinni. „Fyrirséð er að áin mun éta réttina á næstu árum ef ekkert verður að gert. Í svona tilfelli er sennilega lítið hægt að gera annað en að setja bakkavörn úr grjóti neðan við réttina.“

Einnig hafa öll ummerki um eyðibýlið Fögru-Flöt þurrkast út en rústir þess stóðu á grösugu nesi talsvert ofar með Ásaeldvatni, nær Múla en Ytri-Ásum. „Í hlaupinu um daginn hefur áin ruðst yfir nesið og slitið það sundur þannig að flötin er nú ekkert nema smáhólmi úti í miðri á. Farvegurinn vestan hólmans er að vísu nánast þurr en viðbúið er að áin muni velta sér vestur fyrir hólmann. Öll ummerki eyðibýlisins eru gjörsamlega þurrkuð út. Það sárgrætilega er að búsetuminjarnar á Fögru-Flöt hafa aldrei verið skráðar af fornleifafræðingum og má því segja að eyða sé komin í byggðasögu Skaftártungu. Nú er ekkert annað að gera en að naga sig í handarbökin og reyna þess á milli að tala enn frekar fyrir fornleifaskráningu, sérílagi á svæðum þar sem er landbrot af völdum fljóta, hafs eða vindrofs,“ segir Uggi Ævarsson minjavörður í Bændablaðinu.

Fyrri greinNaumt tap hjá FSu
Næsta greinBein útsending: Landsfundur Vg á Selfossi