Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út til aðstoðar erlendum ferðamanna í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði.
Maðurinn hringdi inn til Neyðarlínunnar og óskaði eftir aðstoð en hann telur sig fótbrotinn.
Björgunarsveitir frá Þorlákshöfn, Hveragerði og Selfossi eru á leið á staðinn en reynist ástand hans rétt þarf að bera viðkomandi langa leið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Til þess þarf á bilinu 10 – 20 björgunarsveitarmenn enda aðstæður þannig að hált er á svæðinu.
Um helgina hefur verið töluvert um að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína, m.a. við Eyrarbakka. Vill Landsbjörg beina því til ferðalanga að nú fer sú tíð í hönd að veður eru rysjótt og því er nauðsynlegt að undirbúa sig vel og vera vel útbúinn.