Maður kom í afgreiðslu lögreglustöðvarinnar á Selfossi um kl. 19:30 síðastliðinn föstudag. Hann afhenti bréf sem innihélt tilkynningu um að hann hefði tekið lögreglustöðina og sýsluskrifstofuna eignanámi.
Í beinu framhaldi fór hann út af lögreglustöðinni og stefndi að aðaldyrum sýsluskrifstofnunar sem er sambyggð lögreglustöðinni. Þar braut hann rúðu í útihurð og braut sér leið inn í afgreiðsluna. Þar var hann handtekinn og færður í fangaklefa.
Maðurinn var í annarlegu ástandi og enginn leið að yfirheyra hann. Hann gisti fangageymslu fram á næsta dag. Hann mun verða ákærður fyrir eignaspjöll og húsbrot.