Lögreglan á Selfossi handtók í gær mann á Eyrarbakka sem hafði nokkru áður hringt í Neyðarlínuna og gaf í skyn að hann væri vopnaður og með mann í gíslingu.
Jafnframt hafði hann í hótunum að ráðast gegn lögreglu ef hún freistaði að ná til hans.
Leitað var aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra sem kom á Eyrarbakka. Lögreglan yfirbugaði manninn og færði hann á lögreglustöð.
Maðurinn var óvopnaður við handtöku og veitti ekki mótþróa. Að sögn lögreglu er talið að maðurinn eigi við geðsjúkdóm að stríða og verður læknir látinn leggja mat á ástand hans.
Maðurinn er búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Vegna rannsóknarhagsmuna mun lögregla ekki veita frekari upplýsingar um málið.