Vinnuslys varð í Rangárþingi ytra í morgun þegar maður slasaðist við smíðavinnu í sumarbústaðarlandi við Minna-Hof.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var maðurinn að saga með borðsög þegar hann sagaði í upphandlegginn á sér. Mikil blæðing var frá sárinu og var maðurinn fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku.
Morgunblaðið greinir frá þessu.