Í kvöld kl. 19:25 bárust Neyðarlínunni boð frá starfsmanni Laugarvatn Fontana að um það bil 60 lítrar af saltsýru hefðu lekið úr tanki í birgðageymslu heilsulindarinnar.
Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu á Laugarvatni var kallað út en einnig kom bíll frá stöðinni á Selfossi með viðbótar kalk og fleira. Kalkið var notað til að núllstilla áhrif sýrunnar þannig að mögulegt var að moka gumsinu í kar sem losað verður á gámastöð.
Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri, segir að allir sem komu að verkefninu hafi verið með öndunarbúnað til að varast uppgufun sýrunnar. Starfi slökkviliðs á vettvangi lauk um kl. 23.
Að sögn Kristjáns er þetta í annað sinn sem leki verður í Fontana. Orsök þess verður skoðuð frekar og unnið að úrbótum í kjölfarið.