Samgönguráðuneyti og Vegagerðin hafa lagt til að Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, verði falin umsjón og rekstur almenningssamgangna á starfssvæði samtakanna.
Er gert ráð fyrir að sveitarfélögin taki yfir ábyrgð og skipulagið á málaflokknum og er Suðurland fyrsti landshlutinn sem tekst á við verkefnið.
Fyrst í stað falla sérleyfisbíla- og strætósamgöngur undir þetta verkefni og síðar er gert ráð fyrir að skólaakstur verði þar einnig. Þá má geta að siglingar Herjólfs falla þarna undir. Er miðað við að SASS taki yfir samgöngurnar 1. janúar næstkomandi.
Að sögn Elfu Daggar Þórðardóttur, sem situr í starfshópi SASS um málið, er með þessu verið að færa ákvörðunarvaldið út til þeirra sem nýta þjónustuna.
,,Það er von manna að með því verði hún skilvirkari og hagkvæmari,” sagði Elfa Dögg en allt það fjármagn sem varið hefur verið til þessa málaflokks mun nú fara í gegnum SASS. Því er gert ráð fyrir að starfseminni verði stýrt innan SASS en Elfa Dögg tók fram að ekki væri ætlunin að ráða fólk sérstaklega til þessa verkefnis.