Fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar og Veðurstofu Íslands skrifuðu í morgun undir samning um rekstur veðurstöðvar á Selfossi.
Tómas Ellert Tómasson, formaður framkvæmda- og veitustjórnar og Óðinn Þórarinsson, fyrir hönd Veðurstofu Íslands, undirrituðu samninginn.
Í framhaldinu var haldið í vettvangsferð um Selfoss í leit að heppilegustu staðsetningunni fyrir veðurstöðina.
Stöðin mun mæla lofthita í 2 m hæð yfir jörðu og vindátt og vindhraða í 10 m hæð yfir jörðu. Einnig verða gerðar mælingar á loftraka og úrkomu í 2 m hæð yfir jörðu.
Veðurstofa Íslands mun sjá um varðveiðslu gagnanna, reka gagnagrunninn og halda honum við. Nýjustu gögn verða birt á vef Veðurstofu Íslands og verða þau opin og aðgengileg almenningi.