Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Baldur Pálsson, framkvæmdastjóri SG húsa, undirrituðu í dag verksamning um byggingu nýs leikskóla í Vík.
Verkið var boðið út í desember síðastliðnum og buðu SG hús á Selfossi lægst í verkið, samtals 409 milljónir króna. Útboðið miðaði að því að skila verkinu á byggingarstigi 3 – tilbúið til innréttingar.
SG Hús buðu jafnframt í viðbótarverkþætti sem miða að því að skila byggingunni frágenginni miðað við byggingarstig 4. Sveitarstjórn samþykkti á fundi 18. janúar sl. að taka tilboði SG Húsa með viðbótarverkþáttum. Heildartilboðsverð er því 475 milljónir kr.
Bygging nýs leikskóla í Vík er stærsta einstaka framkvæmd sem sveitarfélagið hefur ráðist í síðan nýtt íþróttahús var byggt fyrir um 20 árum.
Í tilkynningu frá Mýrdalshreppi segir að framkvæmdin marki upphafið að umfangsmikilli uppbyggingu sem er liður í því að geta þjónustað vaxandi samfélag. Nýr leikskóli er hannaður fyrir allt að 60 börn og gerir hönnunin ráð fyrir því að hægt sé að stækka hann í framhaldinu. Upphaflega gerði hönnun skólans ráð fyrir því að hann yrði staðsteyptur en ákveðið var sl. haust að bjóða hann aftur út miðað við að hann yrði smíðaður úr verksmiðjuframleiddum einingum.