„Sandurinn hefur aldrei verið eins mikill og núna,“ segir Óttar Jónsson, skipstjóri dýpkunarskipsins Dísu, um ástandið í Landeyjahöfn. Hann segir mjög erfitt að athafna sig á svæðinu.
„Við erum búnir að reyna að dæla þarna, það endaði bara með því að við brutum dælurör og fleira úr skipinu. Þar er stórtjón á ferð,“ segir Óttar í Morgunblaðinu í dag en kveðst þó ekki alveg klár á því hví sandurinn sé eins mikill í höfninni og raun ber vitni.
„Það er náttúrlega búið að vera gríðarlega slæmt veður á þessu svæði eins og hefur reyndar verið allstaðar á landinu. Það er líka búin að vera ofboðsleg ölduhæð þarna suður undan síðan í desember,“ segir hann en þess má geta að Dísa hefur verið óvinnufær frá því að dælurörið brotnaði.