Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) mun opna starfsstöð á Höfn í Hornafirði sem styðja mun við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í Sveitarfélaginu Hornafirði og í Skaftárhreppi.
SASS og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands sameinuðust undir merkjum SASS um nýliðin áramót og í desember var auglýst eftir umsóknum í störf atvinnuráðgjafa og verkefnastjóra, á Höfn og á Selfossi. Alls bárust 24 umsóknir í störfin og er stefnt að því að ganga frá ráðningum í janúar.
Formaður SASS, Gunnar Þorgeirsson, og framkvæmdastjóri, Þorvarður Hjaltason, fóru til Hafnar í síðustu viku til að skrifa undir húsaleigusamning og leggja drög að starfinu. Megin áhersla starfstöðvar á Höfn verður að styðja við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í Hornafirði og Skaftárhreppi. Jafnframt munu starfsmenn SASS, hvar sem starfstöðin er, sinna verkefnum fyrir allan fjórðunginn samhliða því að liðsinna íbúum á nærsvæði starfstöðvanna.
Með tilkomu starfsmanns SASS á Höfn er einnig horft til aukinnar samvinnu við aðra aðila sem vinna að eflingu samfélagsins, eins og Matís, Nýsköpunarmiðstöð, aðila í framhaldsfræðslu, rannsóknarstofnanir og viðkomandi sveitarfélög.