Lögreglan lýsir eftir Arturs Jansons, 28 ára karlmanni frá Lettlandi, en síðast sást til hans í Þorlákshöfn fyrr í dag, 8. nóvember.
Fyrir liggur framsalsbeiðni frá yfirvöldum í Lettlandi og einnig staðfesting Landsréttar um að framsal skuli fara fram.
Þau sem geta veitt upplýsingar um ferðir Arturs eru beðin um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112. Einnig er skorað á hann sjálfan að gefa sig fram með því að hringja í 112.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Arturs sé ekki talinn hættulegur.