Við lok fagráðstefnu sauðfjárræktarinnar í síðustu viku voru veitt verðlaun sæðingastöðvanna fyrir besta lambaföðurinn starfsárið 2013-2014 og fyrir mesta alhliða kynbótahrútinn 2015.
Faghópur sauðfjárræktar ákveður hvaða hrútar eru valdir ár hvert. Saumur 12-915 frá Ytri-Skógum fékk verðlaun sem besti lambafaðirinn og Steri 07-855 frá Árbæ fékk verðlaun sem mesti alhliða kynbótahrúturinn.
Ræktendur hrútanna, sem verðlaunaðir voru, hlutu farandgripi sem Sigríður Kristjánsdóttir á Grund útbjó þegar þessar verðlaunaveitingar hófust árið 2009.
Saumur fæddist vorið 2012 í Ytri-Skógum undir Austur-Eyjafjöllum. Hann er af sæðingastöðvunum útnefndur „Besti lambafaðirinn“ vegna lamba sem til skoðunar komu haustið 2014. Saumur er úr ræktun Ingimundar Vilhjálmssonar í Ytri-Skógum.
Saumur vakti athygli strax haustið 2012 sem einstaklingur en þá var hann best gerða hrútlambið sem skoðað var í Ytri-Skógum, gríðarlega vel holdfylltur hvar sem á honum var tekið. Að baki Saum standa margir þeir úrvalsgripir sem notaðir hafa verið í Ytri-Skógum undanfarin ár. Af sæðingahrútum koma fyrstir fyrir í ættartré hans Prjónn 07-812, At 06-806 og Bramli 04-952.
Saumur var valinn á sæðingastöð haustið 2013 á grunni afkvæmarannsóknar í Ytri-Skógum. Hann var afgerandi sigurvegari í þeirri rannsókn fyrir alla þá eiginleika sem skoðaðir voru. Hann fékk því gríðarlega mikla notkun fyrsta veturinn á sæðingastöð og gríðarlega stór hópur afkvæma hans kom til skoðunar haustið 2014.
Afkvæmi hans eru þéttvaxin, lágfætt með sívalan vöðvafylltan bol, gríðarþykkan bakvöðva með hóflegri fitu og feikilega breiðar og holdfylltar malir og afbragðslærahold. Saumur gefur hreinhvít lömb með góða ull ásamt því að afkvæmi hans eru prúðar kindur á velli. Þau voru vel í meðallagi væn (119 í einkunn fyrir fallþunga í uppgjöri fjárræktarfélaganna). Sum afkvæmi Saums eru þó full bolstutt en samsvara sér vel á velli og víða mátti finna yfirburðaeinstaklinga undan honum á héraðssýningum haustið 2014. Kynbótamat hans fyrir skrokkgæði er hátt, 123 fyrir gerð og 114 fyrir fitu.
Saumur er því vel að því kominn að hljóta nafnbótina „Besti lambafaðirinn“ árið 2014. Að lokinni afkvæmarannsókninni í Ytri-Skógum 2013 féllu þau orð, að hér væri á ferðinni hinn „nýi“ Raftur og Kveikur. Hvort hann markar sömu spor og þeir hafa gert kemur í ljós á allra næstu árum.
Saumur frá Ytri-Skógum. Ljósmynd/rml.is