Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur samþykkt að segja upp samningi sínum við innheimtufyrirtækið Intrum frá og með deginum í dag.
Uppsagnarfresturinn er 6 mánuðir sem verður notaður til að ljúka endurskoðun á þeim innheimtuferlum sem nú standa yfir og til að leita tilboða í milliinnheimtu þar sem hagsmunir sveitarfélagsins og íbúa eru hafðir að leiðarljósi, eins og segir í samþykkt hreppsins. Að sögn Ingibjargar Harðardóttur sveitastjóra hefur engin ákvörðun verið tekin um fyrirkomulag innheimtumála.