Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í gær að nota yfirskriftina „Selfoss area – stay closer to nature“ í kynningu og markaðssetningu fyrir erlenda ferðamenn.
Starfshópur um ferðaþjónustumál í Árborg og Flóahreppi hefur á árinu unnið að stefnumótun sveitarfélaganna í ferðaþjónustumálum í samstarfi við fyrirtækið Kapal ehf sem sérhæfir sig í markaðsráðgjöf.
Hópinn skipa þau Ásta Stefánsdóttir, Eggert Valur Guðmundson og Bragi Bjarnason frá Árborg og Eydís Indriðadóttir, Ingunn Jónsdóttir og Rósa Matthíasdóttir frá Flóahreppi.
Kapall skilaði af sér stefnumótun ásamt aðgerðalista í lok sumars en í stefnumótuninni er farið yfir stöðu sveitarfélaganna í dag; styrkleikar, veikleikar, tækifæri og ógnanir greindar og lagðar fram hugmyndir að verkefnum og yfirskrift svæðisins til að auðvelda kynningu fyrir ferðamenn.
Í stefnumótun Kapals er lagt til að framvegis verði svæðið kynnt undir yfirskriftinni „Selfoss area – stay closer to nature“. Selfossnafnið er þekkt á öllum kortum sem bæjarnafn ásamt því að vera ákveðinn miðpunktur verslunar og þjónustu á Suðurlandi. Einnig kom fram í gögnum Kapals að mögulega yrðu sveitarfélaganöfnin orðin úrelt á næstu árum ef farið yrði í sameiningar og því væri sterkast að velja nafn sem allir þekkja og ætti að standa til framtíðar.
Starfshópurinn lagði því til að nýja yfirskriftin verði framvegis notuð í kynningarefni fyrir ferðamenn, en hú vísi í lokamarkmiðið sem er að auka þann fjölda ferðamanna sem gistir lengur á svæðinu og er nær náttúruperlunum en t.d. höfuðborgarsvæðið.
Vinnu starfshópsins er ekki lokið en hann mun áfram vinna að markaðssetningu og stuðningi við ferðaþjónustu í öllu sveitarfélaginu.