Selfosslína 3, nýr 28 km langur jarðstrengur Landsnets milli Selfoss og Þorlákshafnar var tekinn í notkun fimmtudaginn 7. júlí síðastliðinn. Strengurinn er lengsti jarðstrengurinn í flutningskerfi Landsnets.
Stengurinn breytir miklu þegar kemur að afhendingaröryggi raforku í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfossi. Í frétt frá Landsneti segir að strengurinn muni einnig styrkja vestari hluta kerfisins á Suðurlandi og auka flutningsgetu rafmagns á svæðinu til muna.
Strengleiðin liggur um sveitarfélögin Árborg og Ölfus og að mestu meðfram vegum sem fyrir eru á svæðinu.
Hönnun verksins hófst árið 2014 og í kjölfarið var farið í útboð og undirbúning á nauðsynlegum búnaði tengivirkja í Þorlákshöfn og á Selfossi.
Samið var við fyrirtækið NKT Cables um framleiðslu jarðstrengsins og flutning til landsins, ásamt eftirliti með lagningu hans, tengingum og prófunum. Undirverktaki þeirra á Íslandi var fyrirtækið Orkuvirki.