Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu umferðareftirliti úr þyrlu í gærkvöldi.
Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir. Almennt var ökuhraði hófstilltur og ekki tilefni til afskipta.
Einn ökumaður var þó kærður fyrir að aka á 141 km/klst hraða á Norðurlandsvegi skammt frá Hvammstanga. Hann lét sér ekki segjast eftir þau afskipti og var stöðvaður skömmu síðar á 120 km/klst hraða af lögreglunni á Blönduósi. Fyrir fyrra brotið má hann búast við 130 þúsund króna sekt og þremur punktum í ökuferilsskrá en seinna brotið varðar 50 þúsund króna sekt og einum punkti.
Töluverður fjöldi ökumanna var stöðvaður og látinn blása í áfengismæli en allir reyndust allsgáðir.
Fleiri eftirlitsferðir eru ráðgerðar með þyrlu LHG um helgina en lögreglan segir afar hentugt að nýta fastbundið æfingaflug flugmanna til eftirlits sem þessa.