Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kom í heimsókn í ráðhúsið á Hvolsvelli í dag með fríðu föruneyti.
Þar fór hann yfir stöðu mála í Evrópumálunum og svaraði fyrirspurnum frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni, sveitarstjóra og Guðlaugu Ósk Svansdóttur, formanni byggðarráðs.
Margt bar á góma eins og t.d. hver staða Íslands innan Evrópusambandsins yrði og hverjir kostir og gallar aðildar væru.
Summa var svo með opinn fund á Hótel Hvolsvelli í kvöld.