Í gær var ungmennum í vinnuskóla Rangárþing eystra boðið í grillveislu á Breiðabólstað hjá séra Önundi S. Björnssyni og Kristjönu Þráinsdóttur sambýliskonu hans.
Ungmennin voru búin að hreinsa og snyrta svæðið í kringum krikjuna í vikunni.
Séra Önundur er að láta af störfum en hann hefur verið prestur á Breiðabólstað í 22 ár. Hann mun ferma í lok sumars þau börn sem áttu að fermast síðast liðið vor.
Í vinnuskóla Rangárþings eystra eru rúmlega 40 ungmenni og hafa þau verið duglega við að fegra sveitarfélagið síðan í byrjun júní. Flest þeirra starfa út júlí.