Sérákvæði um starfandi sorpbrennslustöðvar hafa nú verið felld úr gildi með breytingu á reglugerð um brennslu úrgangs. Breytingin snertir eingöngu stöðvarnar á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum.
Reglugerðin, sem nýlega var undirrituð, hefur í för með sér að allar íslenskar sorpbrennslustöðvar eiga nú að uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til sambærilegrar starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
Með breytingunni er sorpbrennslustöðvum gert að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar eigi síðar en 1. janúar næstkomandi. Skulu rekstraraðilar þeirra tilkynna Umhverfisstofnun eigi síðar en 1. maí næstkomandi um hvort áframhaldandi rekstur stöðvarinnar sé fyrirhugaður. Áformi rekstraraðili að halda áfram rekstri skal hann jafnframt senda Umhverfisstofnun áætlun um hvernig stöðin muni uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Í því tilviki skal umsókn um nýtt starfsleyfi berast Umhverfisstofnun fyrir 1. maí næstkomandi.
Með breytingunni er gerð krafa um reglulegar mælingar á díoxíni tvisvar á ári hjá þeim brennslustöðvum sem halda áfram rekstri eftir 1. janúar 2013. Þá er gerð krafa um samfelldar mælingar á tilgreindum efnum, s.s. kolsýru og ryki. Þurfa sorpbrennslustöðvarnar því að hafa búnað til að sinna þessum mælingum.
Breytingarnar eru liður í viðbrögðum stjórnvalda í ljósi þess að mælingar á díoxíni frá sorpbrennslustöðvum á Ísafirði, Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri gáfu tilefni til að endurskoða reglugerð um brennslu úrgangs. Mikil umræða var um díoxínmengun frá þessum stöðvum sem og sorpbrennslustöðvarinnar í Svínafelli. Þegar hefur sorpbrennslustöðvunum í Svínafelli og á Ísafirði verið lokað að frumkvæði sveitarfélaganna, og snertir reglugerðarbreytingin nú því eingöngu stöðvarnar í Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri.