Sex sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem heilbrigðisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í lok maí. Umsóknarfrestur rann út 18. júní síðastliðinn.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Birgir Guðjónsson, deildarstjóri
Díana Óskarsdóttir, deildarstjóri
Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
Harpa Þuríður Böðvarsdóttir, forstöðumaður
Ingunn Björnsdóttir, dósent
Sigurður Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati sérstakrar hæfnisnefndar á umsækjendum.