Sex umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Þorlákshafnarprestakalli en umsóknarfrestur rann út þann 9. desember.
Umsækjendurnir eru:
Erna Kristín Stefánsdóttir, mag. theol.
Sr. Gunnar Jóhannesson
Sr. Haraldur Örn Gunnarsson
Sr. Jónína Ólafsdóttir
Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir
Ægir Örn Sveinsson, mag. theol.
Í Þorlákshafnarprestakalli, eru tvær sóknir, Þorláks- og Hjallasókn í Ölfusi og Strandarsókn, með tæplega 1.800 íbúa og þrjár kirkjur: Þorlákskirkja í Þorlákshöfn, Hjallakirkja að Hjalla í Ölfusi og Strandarkirkja að Strönd í Selvogi.
Biskup Íslands mun veita starfið frá og með 1. febrúar 2020.