Lögreglan á Selfossi fór í þyrlueftirlit um Suðurland í gærkvöldi með þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ. Afskipti voru höfð af sex ökumönnum vegna hraðaksturs.
Í gær áttu rúmlega tólf þúsund ökutæki leið um Suðurlandsveg við Ingólfsfjall. Eins og áður var mest álagið síðdegis. Umferðin gekk vel og án nokkura óhappa.
Lögreglan flaug með áhöfn TF-GNÁ í uppsveitir Árnessýslu austur eftir þjóðvegi 1 inn á Mýrdalssand og þaðan inn á Syðra Fjallabak. Að Fjallabaki sást til tveggja ökutækja en ekki þurfti að hafa afskipti af þeim og engin nýleg ummerki voru um utanvegaakstur á svæðinu.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi segir að embættið sé afar þakklátt Landhelgisgæslunni og starfsmönnum hennar sem að þessu koma fyrir frábært samstarf sem hefur þróast með þessu verkefni. Lögreglumenn eru vissir um að eftirlitið hafi, ásamt öðru, dregið úr utanvegaakstri og vonandi hraðakstri á fáfarnari vegaköflum þar sem ökumenn eiga síður von á að lögreglumenn séu á ferð. Áhafnir þyrlanna og lögreglumenn nota hvert tækifæri til að stilla saman strengi og ná upp og viðhalda færni við þyrlueftirlitið.