Sextugasta starfsár ML hafið

Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, setti skólann í morgun en nú er 60. starfsár ML að hefjast.

Halldór Páll fór vítt og breitt í setningarræðu sinni; fjallaði um starfslið skólans og mötuneytis, um námið, heimavistarmálin og breytingar á ýmsum sviðum.

Innritaðir nemendur nú í skólabyrjun eru 181 og þarf að leita til þess tíma í sögu skólans þegar hann hafði aðgang að heimavistarhúsum Héraðsskólans og áður en gagngerar breytingar voru gerðar á heimavistarhúsinu Nös til að finna fleiri innritaða nemendur. Það er nefnilega svo, að það rými sem unglingar fyrir 20 árum gerðu sér að góðu, telst fremur þröngt í hugum unglinga nútímans.

Þegar nemendur urðu flestir á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar komust þeir nokkuð á þriðja hundraðið.

Að skólasetningu lokinni hófst kennsla samkvæmt stundaskrá.

Fyrri greinStyrktarsamningar við íþróttaakademíur FSu framlengdir
Næsta greinInnan við helmingur íbúða Íbúðalánasjóðs í útleigu