Sigrún Árnadóttir, verkefnisstjóri við þjónustumiðstöð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, mun starfa þar fram í miðjan ágúst en hún hefur verið ráðin bæjarstjóri í Sandgerði.
Rögnvaldur Ólafsson, starfsmaður almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, segir óvíst hver taki við keflinu en Ríkislögreglustjóri hyggst halda stöðunni úti til áramóta. „Við munum fara yfir ýmsa möguleika eftir verslunarmannahelgi,“ sagði Rögnvaldur í samtali við Sunnlenska.