Píratar og Viðreisn, ásamt óháðum, hafa kynnt sameiginlegt framboð til sveitarstjórnarkosninga 2018 í Árborg undir nafninu Áfram Árborg og verður listabókstafur framboðsins Á.
Efstu sæti listans skipa:
- Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur
- Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur
- Sigurður Á. Hreggviðsson, öryrki
- Guðfinna Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari
- Gunnar E. Sigurbjörnsson, tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
Frá þessu er greint á heimasíðu Pírata.