Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur, að höfðu samráði við Samgöngustofu og lögregluyfirvöld, ákveðið að loka Silfru tímabundið fyrir köfurum vegna alvarlegra slysa sem orðið hafa við köfun og yfirborðsköfun í gjánni.
Lokunin gildir frá kl. 9:00 laugardaginn 11. mars til kl. 8:00 mánudaginn 13. mars.
Innan þess tíma sem lokunin gildir verður farið yfir verklag rekstraraðila og reglur sem gilda um þá sem stunda köfun og yfirborðsköfun í gjánni.
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þjóðgarðsins.
Á síðustu sjö árum hafa orðið tíu alvarleg slys í Silfru, þar af fimm banaslys. Nú síðast í gær þar sem erlendur karlmaður á sjötugsaldri lést eftir yfirborðsköfun í gjánni.