Símalaus grunnskóli í Þorlákshöfn

Grunnskólinn í Þorlákshöfn. Ljósmynd/Jóhanna M. Hjartardóttir

Frá og með mánudeginum 4. nóvember munu nýjar reglur um símanotkun nemenda á skólatíma taka gildi í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Hingað til hefur verið leyfilegt fyrir nemendur í unglingadeild að nota síma í frímínútum, en með nýju reglunum verður símanotkun alfarið óheimil á skólatíma.

Að sögn Jóhannu M. Hjartardóttur, sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, eru þessar breytingar afrakstur samráðsferlis innan skólans þar sem leitað var álits foreldra, starfsfólks og nemenda.

„Kannanir sýndu að um 90% foreldra og starfsfólks vildu að nemendur væru í fríi frá símanum á skólatíma. Þó 70% nemenda hafi viljað halda fyrri reglum óbreyttum, kom einnig fram að um 30% nemenda vildu fá frí frá símum á skólatíma,“ segir Jóhanna og bætir við að nemendur hafi einnig komið með góðar hugmyndir að afþreyingu í frímínútum.

„Sem liður í því verður íþróttahúsið opnað oftar í frímínútum og lögð verður aukin áherslu á fjölbreytta afþreyingu með spilum og öðrum leikjum. Við bendum einnig foreldrum á að gömul spil sem ekki eru lengur í notkun heima gætu nýst nemendum vel í frímínútum,“ segir Jóhanna ennfremur.

Vonast er til að nýju reglurnar stuðli að betra námsumhverfi, meiri félagslegri samveru og aukinni einbeitingu fyrir nemendur skólans.

Fyrri greinSamfylkingin býður til opins kaffifundar á Selfossi
Næsta greinÁsthildur Lóa leiðir Flokk fólksins í Suðurkjördæmi