Ekki verður hægt að telja atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í kvöld líkt og til stóð vegna veðurs. Atkvæði verða talin á morgun, sunnudag.
Búið er að loka flugvellinum í Vestmannaeyjum og verður ekki flogið þaðan fyrr en á morgun. Byrjað verður að telja atkvæði á hádegi á morgun en ekki er ljóst hvenær fyrstu tölur muni birtast.
Kjörstöðum var lokað klukkan 18 og ekki er vitað hver kjörsóknin var.