Sjálfstæðisfélögin í Árborg og Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Árborg hvetja Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, til að bjóða sig fram til formanns á landsfundi flokksins í lok febrúar.
„Guðrún hefur af krafti, dugnaði og framsýni komið inn í íslensk stjórnmál og óhikað barist fyrir bættu samfélagi með sjálfstæðisstefnuna að leiðarljósi. Fjölþætt reynsla Guðrúnar úr atvinnulífinu, úr félagsstarfi, á pólitískum vettvangi og ekki síst sem dómsmálaráðherra á krefjandi tímum er reynsla sem ný forysta Sjálfstæðisflokksins þarf á að halda,“ segir í sameiginlegri ályktun félaganna.
Undir hana rita formenn Sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi, Sjálfstæðisfélags Eyrarbakka, Sjálfstæðisfélags Stokkseyrar, Hersis félags ungra sjálfstæðismanna og fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Árborg.