Níu einstaklingar eru í einangrun á Suðurlandi í dag, vegna COVID-19 og 11 í sóttkví.
Af þessum níu eru sjö í einangrun á Selfossi og þar eru þrír í sóttkví, að því er fram kemur í daglegum tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Þá eru 260 einstaklingar í skimunarsóttkví á Suðurlandi eftir að hafa farið í skimun á landamærunum og hefur þessi tala hækkað talsvert síðustu daga.
Í gær greindust tíu kórónuveirusmit innanlands og var eitt þeirra ekki í sóttkví en þetta kemur fram á covid.is.