Krónan hefur nú úthlutað um sjö milljónum króna til 25 verkefna í formi samfélagsstyrkja til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar.
Í ár bárust 111 umsóknir þar sem 25 þeirra hlutu styrk og voru verkefnin sjö á Suðurlandi. Þau verkefni sem hlutu styrk eru:
- Rafíþróttadeild Dímonar á Hvolsvelli, fyrir uppbyggingu á rafíþróttadeild.
- Afrekshugur á Hvolsvelli, fyrir afsteypu af styttu Nínu Sæmundsdóttur í miðbæ Hvolsvallar.
- Reiðskólinn á Bjarnastöðum í Ölfusi, fyrir búnaði og uppbyggingu.
- Dansakademían á Selfossi, fyrir fyrstu nemendasýningu nýs dansskóla.
- Foreldrafélag leikskólans Bergheima í Þorlákshöfn, fyrir kaup á Bambahúsi til að rækta grænmeti.
- Ægir í Þorlákshöfn fyrir knattspyrnudeild barna.
- Björgunarsveitin Víkverji í Vík, fyrir uppbyggingu.
Að sögn Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með uppgangi þeirra verkefna sem hafa hlotið samfélagsstyrki Krónunnar í gegnum árin.
„Við hjá Krónunni erum afar glöð með fjölda og gæði styrktarumsókna í ár og greinilegt að mikill metnaður er lagður í þau verkefni sem snúa að lýðheilsu og hreyfingu barna og ungmenna, sem og uppbyggingu í okkar nærsamfélagi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Það er okkur sönn ánægja að leggja þessum aðilum og verkefnum lið í þeirra vegferð. Eins er virkilega gaman að veita nú styrki á Akureyri í fyrsta sinn þar sem við munum opna okkar fyrstu verslun á Norðurlandi á næsta ári,“ bætir Ásta við.
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar 1. maí 2022. Umsóknarfrestur verður til og með 31. ágúst 2022.