Í dag verður haldin skrifborðsæfing í tengslum við gerð viðbragðsáætlunar vegna sjóslysa við suðvesturströnd Íslands. Undir áætlunina falla aðgerðir frá þremur höfnum; Vestmannaeyjahöfn, Þorlákshöfn og Landeyjahöfn.
Markmið æfingarinnar er að láta reyna á stjórnkerfi áætlunarinnar, fjarskipti og samskipti milli stjórnstöðva.
Á æfingunni verða virkjaðar eftirfarandi stjórnstöðvar: Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð, Vaktstöð siglinga, aðgerðarstjórn í Vestmannaeyjum, aðgerðarstjórn á Hellu, aðgerðarstjórn á Selfossi og vettvangsstjórn í Landeyjahöfn. Allar þessar stjórnstöðvar verða skipaðar fulltrúum viðbragðsaðila, lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, Landhelgisgæslunni, Rauða kross Íslands, heilbrigðisstofnunum og fulltrúum eftirlitsstofnanna. Einnig tekur óhappanefnd skipafélagsins Eimskip þátt í æfingunni.
Að skipulagi æfingar koma fulltrúar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Siglingastofnun, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Landspítalanum og skipafélaginu Eimskip.
Á æfingunni verður tekist á við þá sviðsmynd að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi hlekkist á við innsiglinguna í Landeyjahöfn með 350 farþega um borð.