Björgunarsveitir sem voru við störf í gærkvöldi voru flestar að fram eftir nóttu. Björgunarsveitir fyrir austan fjall sinntu áfram lokunarpóstum við Hellisheiði og Þrengsli og um klukkan fjögur var sjúkrabíl fylgt um Þrengslin til Reykjavíkur
Þrengslin voru orðin fær um klukkan hálf sjö en Hellisheiði er enn lokuð. Lögreglan á Selfossi biður ökumenn að virða lokanir og fylgjast með á vef Vegagerðarinnar áður en lagt er af stað. Víða um land er nú ófært á fjallvegum en unnið að mokstri.