Þær fréttir voru að berast frá vatnamælingamönnum Veðurstofu Íslands að hlaup er að hefjast í Skaftá.
Ekki er vitað á þessari stundu um stærð þess eða frá hvorum katlinum í Vatnajökli það kemur. Vatn er farið að hækka við Sveinstind og búast má við að hlaupsins verði vart við fjallaskálann Hólaskjól á Nyrðra-Fjallabaki um kl. 16.00 og að þess verði vart við veginn inn í Skaftárdal um kl. 18.30. Nokkru seinna verður flóðið komið að Kirkjubæjarklaustri.
Haft hefur verið samband við íbúa í Skaftárdal en flætt getur yfir veginn þangað. Ekki er talin hætta á ferðum, lögregla fylgist grannt með málinu í samvinnu við Veðurstofu Íslands.
Ferðamenn staddir við Hólaskjól á Nyrða-Fjallabaki eru beðnir að hafa vara á sér.