Allt tal um að Eimskipafélagið leggist gegn siglingum til Landeyjahafnar er alrangt. Herjólfur mun sigla í Landeyjahöfn þegar aðstæður leyfa.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Eimskipafélag Íslands, rekstraraðili Herjólfs, sendi frá sér í morgun.
„Eimskipafélagið óskar eftir því við fjölmiðla og aðra að þeir láti af óvæginni gagnrýni sinni og að skipstjórar Herjólfs fái vinnufrið. Það er enginn annar hvati sem liggur að baki þeirra ákvörðunum en sá að tryggja öryggi farþega, áhafnar og skips,“ segir í yfirlýsingunni.
Eimskipafélagið telur afar mikilvægt að sem fyrst verði settur á fót virkur starfshópur um siglingar í Landeyjahöfn skipaður sérfræðingum og skipstjórnarmönnum sem viði að sér upplýsingum um mannvirki, skip, veðurfar, sjólag og siglingar sem liggja fyrir og vinni úr þeim gögnum tillögur að lausn til að tryggja hámarksnýtingu Landeyjahafnar til skemmri og lengri tíma.
Miðað við reynsluna síðasta vetur sé ekki ólíklegt að sigla þurfi til Þorlákshafnar hluta ársins en það ræðst af mörgum þáttum og skilyrðum, t.d. stærð og hönnun skips, dýpi og sjávarhæð, ölduhæð og öldulengd, straumur, vindátt, vindstyrk og sjólagi í hafnarmynni svo eitthvað sé nefnt.