Að sögn Guðbjargar Heimisdóttur, fasteignasala hjá Fasteignasölu Suðurlands, hefur fasteignamarkaðurinn í Þorlákshöfn verið að lifna lítillega við þó hæpið sé að segja að hann sé fjörlegur.
„90% viðskiptanna eru makaskipti þar sem fólk er að stækka eða minnka við sig. Á meðan bankarnir eru svona lokaðir og erfiðir er erfitt að koma viðskipum á,“ sagði Guðbjörg.
Að sögn Guðbjargar hefur fasteignaverð ekki lækkað mjög mikið í Þorlákshöfn, það er þá helst í þeim tilfellum þegar bankarnir hafa selt húsnæði í sinni eigu en slíkar sölur eru fáar.
Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu